Sport

Kelce fram­lengir og verður launa­hæsti inn­herji sögunnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Travis Kelce hefur átt magnað ár til þessa. NFL-meistari, kærasti Taylor Swift og nú launahæsti innherji sögunnar.
Travis Kelce hefur átt magnað ár til þessa. NFL-meistari, kærasti Taylor Swift og nú launahæsti innherji sögunnar. Ethan Miller/Getty Images

Raðsigurvegarinn Travis Kelce hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við NFL-meistaralið Kansas City Chiefs. Gerir samningurinn hann að launahæsta innherja sögunnar.

Meistaralið Kansas City Chiefs staðfesti tíðindin í kvöld. Þar sagði félagið meðal annars hafa framlengt samning besta innherja allra tíma.

Fyrr í kvöld greindi hinn áreiðanlegi Ian Rapoport frá því að Kelce væri fyrir löngu búinn að semja við Chiefs um að spila með liðinu næstu tvö árin. Að sama skapi sagði Rapoport að samningurinn myndi gera Kelce að launahæsta innherja allra tíma.

Hinn 34 ára gamli Kelce var magnaður innan vallar sem utan á síðustu leiktíð. Hann og Patrick Mahomes leiddu Kansas til sigurs í þriðja sinn síðan 2020. Þá var samband hans og tónlistarkonunnar Taylor Swift opinberað.

Eftir að tímabilinu lauk mátti sjá Kelce skemmta sér vel á tónleikum hennar um heim allan. Töldu því margir NFL-sérfræðingar að Kelce væri búinn að ákveða að setja skóna á hilluna líkt og bróðir hans Jason gerði eftir að tímabilinu lauk.

Nú stefnir í að báðir bræðir verði áfram hluti af NFL-deildinni, Travis sem hluti af meistaraliði Chiefs og Jason sem hluti af teymi sjónvarpsstöðvarinnar ESPN.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×